Merki um kólnun í hagkerfi Kína

Merki eru um kólnun í hagkerfi Kína eftir eina verstu ársfjórðungsútkomu sem mælst hefur. Nýjustu tölur benda til þess að ástandið hafi ekki skánað í júlí.Kína er næststærsta hagkerfi veraldar, á eftir Bandaríkjunum. Útkoma annars ársfjórðungs sýndi að efnahagur landsins óx um 4,3 prósent, sem er ein versta mæling síðan þær hófust á tíunda áratugnum. Markmið ríkisstjórnarinnar var hagkerfið yxi um 4,5 til 5 prósent.Mælingarnar skánuðu ekki í júlí. Samkvæmt hagstofu landsins stöðvuðust neysluútgjöld og fjárfestingar í borgum drógust hraðar saman á meðan atvinnuleysi jókst. Smásala jókst um 0,6 prósent sem er hægari vöxtur en í júní, þrátt fyrir útgjöld ferðamanna á þessum tíma árs.Sérfræðingar höfðu spáð 1,5 prósenta vexti. Hagstofan sagði öfgakennt veðurfar, bæði mikill hiti og rigningar o
Merki um kólnun í hagkerfi Kína

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd