Formaður Félags skólastjórnenda í Reykjavík segir samstarf stjórnvalda og kennara skipta meira máli en mælikvarði. Mikilvægt sé að standa vörð um skólakerfið svo það verði alltaf hvetjandi fyrir nemendur. AF HVERJU ERUM VIÐ AÐ GERA ÞETTA? Frá og með næsta vori verða einkunnir við lok grunnskóla gefnar í tölustöfum í stað bókstafa. Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, tilkynnti um breytinguna á þingi Kennarasambands Íslands fyrir fjórum mánuðum – við mikla undrun kennara, sem sökuðu ráðherra um samráðsleysi.Samkvæmt gildandi aðalnámskrá byggir námsmat á bókstafskvarða sem tengdur er hæfni og matsviðmiðum í lok fjórða, sjöunda og tíunda bekkjar.Menntamálaráðherra segir breytinguna svar við ákalli samfélagsins. Markmiðið sé að gera einkunnagjöf auðskiljanlegri og skýrari fyrir nemend