Guðmundur Fertram Sigurjónsson, stofnandi Kerecis, hefur tekið við nýju hlutverki hjá móðurfyrirtækinu Coloplast. Hann verður sérstakur ráðgjafi forstjóra fyrirtækisins og einbeitir sér að vöruþróun og nýsköpun.„Þetta er eitthvað sem ég sá fyrir mér að myndi gerast fyrir ári síðan. Nú er ég kominn á þennan stað, að geta einbeitt mér meira að þróunarmálum og slíku og ekki með rekstrarlega ábyrgð lengur sem ég er búinn að vera með núna í stórum mæli undanfarin átta eða tíu ár. Þannig þetta er afskaplega gleðilegur dagur,“ segir Guðmundur. EKKI TÍMABÆRT AÐ HÆTTA Í STJÓRNANDASTÖÐU Á ÓVISSUTÍMUM Coloplast keypti íslenska fyrirtækið Kerecis árið 2023 á 175 milljarða króna. Guðmundur Fertram tók við stöðu aðstoðarforstjóra sárameðferðar hjá Coloplast eftir söluna.„Þá tók ég að mér að vera stjó