Ræddu að láta bandarískan hershöfðingja hafa eftirlit með afvopnun Hamas

Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, og Jared Kushner, tengdasonur Bandaríkjaforseta og erindreki Bandaríkjastjórnar í Mið-Austurlöndum, ræddu að láta bandarískan hershöfðingja hafa eftirlit með afvopnun Hamas-samtakanna. Fyrr myndi ísraelskt herlið ekki draga sig frá Gaza. Þetta hefur AFP-fréttaveitan eftir ísraelskum embættismanni.Kushner fundaði með Netanjahú í dag í Jerúsalem eftir að hafa rætt við leiðtoga Hamas í gær um friðaráætlun á Gaza. Samtökin samþykktu að afvopnast í lok júlí. Ísrael hafnaði friðaráætluninni í síðustu viku.Embættismaðurinn sagði við AFP að Kushner og Netanjahú væru sammála um að endurbygging myndi ekki eiga sér stað á Gaza fyrr en Hamas myndi leggja niður vopn. Fyrsta skrefið í áttina að því væri að krefjast þess að Hamas afhendi vopn sín undir eftirl
Ræddu að láta bandarískan hershöfðingja hafa eftirlit með afvopnun Hamas

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd