Aðalmeðferð frelsissviptingarmáls sem oftast er kennt við Reykholt hófst við Héraðsdóm Suðurlands í dag. Einn hinna ákærðu mætti fyrir dóm í dag og spilaðar voru hljóðupptökur úr farsíma hans. Í þeim mátti heyra hann ræða við ýmsa um meinta frelsissviptingu og leggja á ráðin með unnustu sinni og yngri bróður.