Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur aftur hafnað beiðni Donald Trump um endurupptöku í máli rithöfundarins E. Jean Carrol. Trump var árið 2023 dæmdur fyrir að hafa brotið kynferðislega gegn Carrol og fyrir ærumeiðingar í hennar garð.Þetta er í annað sinn sem Hæstiréttur hafnar beiðni Trumps um endurskoðun málsins. Í júní hafnaði Hæstiréttur Bandaríkjanna beiðni Trumps um endurupptöku en honum var gert að greiða Carrol rúma fimm milljónir dala, eða um 650 milljónir íslenskra króna, í skaðabætur vegna kynferðisbrotsins.Carrol segir Trump hafa beitt sig kynferðislegu áreiti árið 1996 og síðar haldið því fram á samfélagsmiðlum að ásakanirnar hafi verið uppspuni frá rótum. VÍSAR ÁSÖKUNUM ALFARIÐ Á BUG Carrol, sem er nú 82 ára, stefndi forsetanum og sagði hann hafa ráðist á sig í mátunarklefa í v