Klukkan 18:00 hefst leikur Vals og KA í 19. umferð Bestu deildarinnar. Leikurinn fer fram á N1 vellinum að Hlíðarenda, heimavelli Vals. Fyrri leikur liðanna í sumar endaði meði 0-1 útisigri Vals og var það Albin Skoglund sem skoraði sigurmarkið. Valur kemur inn í leikinn eftir útileik gegn Nordsjælland í forkeppni Sambandsdeildarinnar. Sá leikur endaði með 5-0 tapi Vals í Danmörku og endaði einvígið með sjö marka sigri danska liðsins. Á milli Evrópuleikjanna sigraði Valur Breiðablik og var það fyrsti deildarsigur liðsins undir stjórn Chris Brazell.