Hagsmunasamtök kvikmyndaveranna (Motion Picture Association) í Hollywood hafa náð samkomulagi við kínverska fyrirtækið ByteDance um leiðir til að verja höfundarréttarvarið efni. Samtökin kröfðust þess fyrr á árinu að ByteDance hætti að brjóta á höfundarrétti.ByteDance er kínverskt tæknifyrirtæki sem stendur meðal annars að baki TikTok og spunagreindinni Seedance.Þegar Seedance 2.0 var gefin út í febrúar fór að birtast mikill fjöldi myndskeiða sem unnin eru með forritinu og byggja á höfundarréttarvörðu efni, eins og Hringadróttinssögu Peters Jacksons. Stéttarfélag leikara í Bandaríkjunum fordæmdi einnig höfundarréttarbrotin. Hvað er spunagreind? Gervigreind er AI eða artifical intelligence á ensku. Spunagreind er íslenskun á hugtakinu generative AI.Hugtakið vísar til gervigreindarforrita se