Listaverkaþjófnaður á Maríumessu í Messina

Fjórum sérlega verðmætum listaverkum frá endurreisnartímabilinu var stolið úr listasafni í Messina á Sikiley á laugardag. Þau eru frá 14. öld og eru talin meðal merkilegustu listaverka Antonello da Messina.Þrjú verkanna eru hluti af sex veggspjöldum sem saman mynduðu altaristöflu í San Gregori-klaustri. Fjórða verkið er málverk á báðum hliðum. The Guardian segir að þjófarnir hafi skilið eftir tvö veggspjöld úr altaristöflunni fyrir utan safnið.Verðmæti listaverkanna hefur ekki verið gefið upp en nýverið keypti ítalska ríkið verkið Ecce Homo eftir da Messina á uppboði í New York fyrir tæpar 13 milljónir evra, eða 1,8 milljarða íslenskra króna.Borgarstjóri Messina, Federico Basile, segir þjófnaðinn ámælisverðan en einnig sorglegan því hann átti sér stað þegar mikil hátíðarhöld stóðu yfir í b
Listaverkaþjófnaður á Maríumessu í Messina

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd