82 hjálparstarfsmenn hafa verið drepnir það sem af er þessu ári og 97 særst. 39 hefur verið rænt. Af þeim sem drepnir voru í fyrra voru flestir, eða 186, drepnir á Gaza. Það er hættulegasti staðurinn fyrir hjálparstarfsmenn þriðja árið í röð.Þetta kemur fram í samantekt Mannúðarskrifstofu Sameinuðu þjóðanna sem gerð var í tilefni af alþjóðlegum degi hjálparstarfsmanna.Samkvæmt samantektinni voru þó ekki eins margir drepnir í fyrra og 2024. Þá voru 377 hjálparstarfsmenn drepnir.Tom Fletcher, yfirmaður mannúðarmála hjá Sameinuðu þjóðunum, segir yfir þúsund hjálparstarfsmenn hafa verið drepna á síðustu þremur árum og það sé algjörlega óásættanlegt.„En það að segja það þýðir ekki að næsta hjálparstarfsmanni verði bjargað. Ríki verða að virða alþjóðalög og nota öll tól sem þau hafa til að vernd