Oliver Sigurjónsson var á skýrslu hjá Breiðabliki sem aðstoðarþjálfari í gær þegar liðið heimsótti KR í Bestu deildinni. Oliver, Jón Guðni Fjóluson og Emil Pálsson voru skráðir aðstoðarþjálfarar og Haraldur Björnsson markmannsþjálfari, en Ólafur Ingi Skúlason er aðalþjálfari liðsins. Oliver, sem er 19. leikjahæsti leikmaður í sögu Breiðabliks skv. blikar.is, lagði skóna á hilluna eftir síðasta tímabil en þá lék hann með Aftureldingu. Samkvæmt síðunni lék Oliver 243 leiki með Blikum og skoraði tíu mörk. Í vetur var hann svo ráðinn sem annar af þjálfurum venslaliðsins Augnabliks og er hann aðstoðarþjálfari í 2. flokki Breiðabliks.