Endurbygging stríðsárasafnsins á Reyðarfirði vel á veg komin

Framkvæmdir við endurbyggingu Stríðsárasafnsins á Reyðarfirði eru langt komnar. Mikið foktjón varð á safninu 2022 þegar tveir braggar gjöreyðilögðust. Nú rísa braggar í þeirra stað.Safnið hefur verið starfrækt frá 1995. Þar má fræðast um hersetu Breta og Bandaríkjamanna á Íslandi í seinni heimsstyrjöldinni en ein þeirra aðalbækistöð var á Reyðarfirði.Þórhildur Tinna Sigurðardóttir, forstöðumaður safnsins og menningarstofu Fjarðabyggðar, segir safnið hafa verið með sýningar allt frá stofnun en sýningin hafi fram til þessa staðið óbreytt.„Þess vegna var einstakt tækifæri við tjónið að endurhugsa og endurhanna nýjar sýningar út frá þessum safnkosti sem við eigum,“ segir Þórhildur.„Þetta er búið að ganga mjög hratt fyrir sig og hefur verið sameinað átak hjá okkur í Fjarðabyggð og bæjarstjórn.“
Endurbygging stríðsárasafnsins á Reyðarfirði vel á veg komin

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd