Gríðarlega áhugaverður leikmaður klárar tímabilið með nýliðunum (Staðfest)

Þrátt fyrir að félagaskiptaglugginn hafi lokað síðasta miðvikudagskvöld þá voru nýliðarnir í Grindavík/Njarðvík að fá inn nýjan leikmann - öllum nauðsynlegum pappírum var skilað inn fyrir gluggalok. Stephanie Bukovec er komin með félagaskipti og má spila gegn Fram á fimmtudag, hún er þrítug og þekkir að spila á Íslandi eftir að hafa leikið seinni hluta tímabilsins 2018 með Þór/KA. Hún lék sex deildarleiki með Þór/KA og fimm Evrópuleiki. Stephanie er í grunninn markvörður og gæti orðið fimmti markvörðurinn sem spilar með Grindavík/Njarðvík á tímabilinu. Hún fer í samkeppni við Taylor Fox sem átti góðan leik gegn Breiðabliki í síðustu umferð. Auk Taylor hafa þær Genevieve Jae Crenshaw, Lauren Kellett og Eva Ýr Helgadóttir staðið í marki nýliðanna í Bestu deildinni á tímabilinu. Genevieve er
Gríðarlega áhugaverður leikmaður klárar tímabilið með nýliðunum (Staðfest)

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd