Tíu manna íslensk sveit keppti á Evrópumótinu í sundi en enginn Íslendingur komst áfram í úrslitahluta. Besti árangur Íslendings á mótinu var 30. sæti. Ingi Þór Ágústsson segir árangurinn ágætan ef litið er til hlutfalls þeirra greina sem íslensku keppendurnir bættu sig í.Hann telur hins vegar að halda þurfi vel á spöðunum næstu tvö ár. Annars verði íslenski hópurinn á Ólympíuleikunum í Los Angeles 2028 fámennur. Ísland fær tvö kvótasæti sama hvað, eina konu og einn karl.Ef rýnt er í árangur Íslands út frá stiganiðurstöðu var Ísland í 38. sæti af 48 þjóðum. SKELFUR SMÁ ER HANN HUGSAR TIL LA Ingi telur að framtíðin sé björt fyrir Ísland, enda var stór hluti íslenska hópsins á EM ungur að árum. Þá hefur Ísland ekki haft svo marga keppendur frá EM 2012. Það eru hins vegar fá þeirra í topp