Í lok árs 1964 kom tæplega þrítugur Suður-Afríkumaður hingað til lands og vildi fá inngöngu í Háskóla Íslands. Hann hét Johannes Manong og hafði lent í pólitískum ofsóknum í Suður-Afríku á dögum aðskilnaðarstefnunnar samkvæmt fréttum í blöðum frá þessum tíma. Manong hafði verið meðlimur í ANC-flokki Nelson Mandela og baráttumaður gegn ríkisstjórn Hendrick Verwoerds í Suður-Afríku.Hann sagði frá því í viðtali við bandaríska sjónvarpsþáttinn Say brother árið 1976 að hann hefði þurft að flýja landið eftir Sharpesville-fjöldamorðin svokölluðu árið 1960. Þá skaut lögreglan í Suður-Afríku tæplega 100 óbreytta borgara og særði meira en 200 í mótmælum gegn rasískri lagasetningu ríkisstjórnar hvítra aðskilnaðarsinna. > Ég held að ef við tölum um eitthvað jafn hættulegt og rasisma þá held ég að han