Rússneskur dómstóll dæmdi í dag þekktan stjórnarandstæðing, Lev Shlosberg, í 11 ára fangelsi fyrir gagnrýni hans á innrás Moskvu í Úkraínu. Shlosberg, sem er 63 ára gamall, er einn fárra andstæðinga stjórnarinnar í Kreml sem var enn í Rússlandi eftir að stjórnvöld hófu umfangsmiklar aðgerðir gegn andófsmönnum í kjölfar innrásarinnar í Úkraínu árið 2022. Dómstóllinn í Pskov í norðvesturhluta Rússlands...