Fyrstu klukkustundum aðalmeðferðar í Reykholtsmálinu svokallaða var varið í að hlusta á hljóðupptökur af símtölum úr síma Andra Más Mortensen Birgissonar, sem ásamt fimm öðrum Íslendingum er sakaður um að hafa framið sérstaklega hættulega líkamsárás, frelsissviptingu, ólögmæta nauðung og rán.