Jared Kushner, tengdasonur Bandaríkjaforseta og erindreki Bandaríkjastjórnar í Mið-Austurlöndum, ræðir í dag við forsætisráðherra Ísraels um friðaráætlun á Gaza. Kushner fundaði með leiðtoga Hamas í gær um áætlunina, sem stjórnvöld í Ísrael hafa þegar hafnað.Fundur Kushners og Benjamíns Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, hófst fyrir hádegi.Á fundinum eru einnig fulltrúar friðarráðs Trumps, sem hefur umsjón með friðaráætlun Bandaríkjaforseta fyrir Gaza, búlgarski stjórnmálamaðurinn Nickolay Mladenov og Tony Blair, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands.Friðarráðið náði samkomulagi við Hamas-samtökin og aðra vopnaða hópa á Gaza um að þeir skyldu afvopnast í lok júlí. Það var hluti af fimmtán punkta friðarsamkomulagi sem friðarráðið setti saman. Afvopnunin væri þó háð því að Ísraelar myndu