Upptökur í Reykholtsmálinu: „Ég er bara í miðri frelsissviptingu“

„Ég er alvarlega að hugsa um að frelsissvipta einhvern og ræna,“ heyrist í upptöku úr síma Andra Más Mortensen Birgissonar, sem er einn sakborninga í Reykholtsmálinu svokallaða. Sex Íslendingar, fimm karlar og ein kona, eru ákærð fyrir að halda manni föngnum á heimili sínu í Reykholti í Bláskógabyggð og beita hann harkalegu ofbeldi til þess að hafa af honum fé í apríl 2024.Margra klukkustunda langar upptökur voru spilaðar við aðalmeðferð sem hófst í Héraðsdómi Suðurlands í morgun. Sími Andra Más tók upp öll samtöl og hljóð um leið og reynt var að hringja úr símanum – hvort sem símtölunum var svarað eða ekki.Fyrstu upptökurnar voru gerðar dagana áður en en meint frelsissvipting átti sér stað. Þar má heyra Andra Má tala við tengdaföður sinn, sem er einnig sakborningur í málinu, á þriðjudegi.
Upptökur í Reykholtsmálinu: „Ég er bara í miðri frelsissviptingu“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd