Hótar að gera sprengjuárásir á Óman standi stjórnvöld í vegi fyrir samkomulagi um opnun Hormússunds

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hótað því að gera sprengjuárásir á Óman, standi stjórnvöld þar í vegi fyrir samkomulagi um opnun Hormússunds.Forsetinn lét þessi orð falla í viðtali á Fox News í morgun. "Ef Óman þvælist fyrir, þá sprengjum við þá í tætlur," sagði Trump.Írönsk stjórnvöld greindu frá því í morgun að þau ynnu að lokafrágangi samkomulags við stjórnvöld í Óman um framtíð siglinga um Hormússund. Bandaríkin hafa krafist þess að sundið verði opnað að fullu. Ekki liggur fyrir hvort samkomulagið uppfyllir þær kröfur.Talsmaður íranska utanríkisráðuneytisins sagði í morgun að Íran og Óman hefðu náð samkomulagi. Hann skýrði ekki frekar frá því hvað fælist í samkomulaginu. AP-fréttastofan segir að upplýsingar hafi komið sem bendi til þess að siglingaleið inn í Persaflóa um Hormússun
Hótar að gera sprengjuárásir á Óman standi stjórnvöld í vegi fyrir samkomulagi um opnun Hormússunds

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd