Prófessor í hagfræði vill ekki sjá frekari stýrivaxtahækkun og segir aðhald og samdrátt í efnahagsmálum til þess fallin að stemma stigu við hækkandi verðbólgu. Til þess þurfi að hægja á framgangi atvinnulífsins.Enn hærri vextir gætu dregið óþarflega mikið úr hagkerfinu og komið illa niður á heimilum, fyrirtækjum og byggingariðnaðinum.Flestir greiningaraðilar telja að vextir verði hækkaðir um 0,25 prósentustig á miðvikudag, í 8%, þegar vaxtaákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans verður kynnt. Miðað við verðbólguvæntingar er útlit fyrir að raunstýrivextir verði 4% eftir ár. SÍÐASTA VERÐBÓLGUMÆLING VEL YFIR MEÐALTALI Már Wolfgang Mixa, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands, segir líklegt að stýrivextir verði hækkaðir á miðvikudag. Þá fari álag stýrivaxta á verðbólgu upp í 2,7% miðað