Hættir að selja hvalkjöt til Japan og vill framleiða úr því bætiefni

Hvalur hf. ætlar að hætta sölu á hvalkjöti til Japans. Þess í stað verður kjöt af langreyðum nýtt í framleiðslu á járnbætiefni. Það verður í formi dufts sem selt verður í hylkjum.Morgunblaðið greinir frá þessu.Kristján Loftsson, forstjóri Hvals, bendir á í samtali við blaðið að járnskortur hrjái um þriðjung mannkyns. Hann telur þá staðreynd geta orðið til þess að hvalveiðar ykjust víða um heim.Kristján telur að hægt verði að selja bætiefnið til Noregs, Færeyja og Japans þar sem ekki er heimilt að selja hvalaafurðir til annarra landa.Samkvæmt ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar er leyfilegt að veiða 150 langreyðar í ár. Eftir því sem fréttastofa kemst næst hafa hátt í fimmtíu langreyðar verið veiddar í sumar.
Hættir að selja hvalkjöt til Japan og vill framleiða úr því bætiefni

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd