Vara við málmbita í brauði

Matvælastofnun varar við einni framleiðslulotu af Euro Market-brauði vegna aðskotahlutar sem fannst í einu brauði.Lindabakarí framleiðir brauðið og hefur fyrirtækið innkallað vöruna í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness.Einungis er verið að kalla inn framleiðslulotu með síðasta neysludag 14. ágúst og strikamerki 5906681555776. Þeir sem eiga vöruna enn eru beðnir um að neyta hennar ekki, heldur farga henni eða skila í næstu verslun Euro Market gegn endurgreiðslu.Aðsend
Vara við málmbita í brauði

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd