Einn handtekinn og fleiri grunaðir vegna stórtækrar kannabisræktunar á Vestfjörðum

Einn var handtekinn í byrjun síðustu viku vegna umfangsmikillar kannabisræktunar í kjallara húss í Króksfjarðarnesi. Þetta kemur fram í Facebook-færslu lögreglunnar á Vestfjörðum.Lögreglan lagði hald á fjölmargar kannabisplöntur og mikið af búnaði til ræktunar.Maðurin var í framhaldinu úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald.Lögreglan á Vestfjörðum naut aðstoðar lögreglunnar á Vesturlandi og tæknideildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við aðgerðina.DV greindi fyrst frá lögregluaðgerð í Króksfjarðarnesi.Hlynur Snorrason, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Vestfjörðum, segir í samtali við fréttastofu RÚV að maðurinn sem var handtekinn eigi brotaferil að baki.Lögreglan hafi strax farið á vettvang þegar grunur vaknaði um ræktunina í byrjun síðustu viku og að fleiri en einn séu grunaðir í mál
Einn handtekinn og fleiri grunaðir vegna stórtækrar kannabisræktunar á Vestfjörðum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd