Sjóða þarf neysluvatn á Borgarfirði eystra því e.coli-gerlar fundust við reglubundna sýnatöku í síðustu viku. Austurfrétt greinir frá.Íbúum er ráðlagt að sjóða neysluvatn og má finna leiðbeiningar um suðu neysluvatns með því að smella hér. Samkvæmt tilkynningu HEF veitna ehf. er óhætt að nota vatnið til annarra þarna, til dæmis til að baða sig. Frekari sýni verði tekin í vikunni.HEF veitur segja að einmitt nú standi yfir framkvæmdir á vatnsveitu Borgarfjarðar sem miði að uppsetningu á gegnumlýsingartæki til að koma í veg fyrir mengun sem þessa. Þeim sé hins vegar ekki lokið.Lagt verði kapp á að koma gegnumlýsingartæki í gagnið en ekki er ljóst hvort það náist í vikunni.