„Þetta er glæsileg veiði, lítur vel út og mikið af fiski, og laxinn er enn að ganga. Ég bjóst við góðri veiði í sumar, við erum búin að vera að byggja upp ána frá því Jökla var virkjuð og hér er orðinn til einn af stærstu laxastofnum landsins,“ segir Þröstur Elliðason.