Ekki náðist að hafa uppi á breskum hjónum sem grunuð eru um að hafa skilið eftir fimm ára dreng í bíl á meðan þau fóru í göngu að Ófærufossi. Fjölskyldan yfirgaf landið áður en lögreglan á Suðurlandi hafði hendur í hári þeirra.Íris Edda Hemisdóttir, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi, segir málinu lokið hjá þeim. Hjónin voru grunuð um brot á barnaverndarlögum og segir Íris miður að ekki hafi náðst að hafa uppi á þeim.Vitni og hluteigendur voru tekin í skýrslutöku og hefur málið verið sent áfram til breskra stjórnvalda sem hafa kost á að taka það upp.Málið vakti töluverða athygli fyrr í mánuðinum. Kona sem fann drenginn grátandi á bílaplaninu sagði frá því á Facebook að bresk hjón frá Lúndúnum hefðu skilið fimm ára drenginn einan eftir í bíl og farið í göngu að Ófærufossi. Konan sa