Bogi Ísak Nilsson er látinn

Bogi Ísak Nilsson, fyrrverandi ríkissaksóknari og ríkislögreglustjóri, er látinn. Hann var 85 ára að aldri. Morgunblaðið greinir frá andlátinu. Þar segir að hann hafi látið lífið á heimili sínu 13. ágúst eftir stutt en erfið veikindi.Bogi fæddist á Siglufirði 24. nóvember 1940.Hann á fjölbreyttan starfsferil að baki. Hann lauk lögfræðiprófi við Háskóla Íslands undir lok sjöunda áratugarins og starfaði meðal annars sem sýslumaður í Suður-Múlasýslu.Bogi varð fyrsti ríkislögreglustjóri hér á landi árið 1997. Hann var skipaður ríkissaksóknari 1998 og gegndi því embætti í tuttugu ár ásamt því að vera settur ríkissaksóknari í einstökum málum síðar.Eftirlifandi eiginkona Boga er Elsa Petersen. Þau eignuðust þrjú börn, Bernhard Nils, Boga Nils og Önnu Maríu, níu barnabörn og sex barnabarnabörn.
Bogi Ísak Nilsson er látinn

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd