Ráðamenn í Bandaríkjunum vilja ólmir senda hermenn til Mið- og Suður-Ameríku, þar sem þeir eiga að herja á leiðtoga og meðlimi glæpasamtaka sem smygla fíkniefnum til Bandaríkjanna. Á undanförnum mánuðum hafa Bandaríkjamenn fellt fleiri en tvö hundruð manns í loftárásum á meinta smyglara sem eiga að hafa verið að smygla fíkniefnum til Bandaríkjanna.