Fleiri en einn grunaðir vegna stórtækrar kannabisræktunar á Vestfjörðum

Fleiri en einn eru grunaðir um umfangsmikla kannabisræktun í kjallara húss í Króksfjarðarnesi. Þetta staðfestir lögreglan á Vestfjörðum.Lögreglan fór strax á staðinn eftir að grunur vaknaði í upphafi síðustu viku og umtalsvert magn af kannabis var gert upptækt.Maður sem á brotaferil að baki var handtekinn vegna málsins.DV greindi fyrst frá.Fleiri en einn eru grunaðir í málinu, segir Hlynur Snorrason yfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á Vestfjörðum, við fréttastofu RÚV.
Fleiri en einn grunaðir vegna stórtækrar kannabisræktunar á Vestfjörðum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd