Hlýjast á Norðurlandi í dag, allt að 20 stig

Búist er við lítilli úrkomu í dag sem verður nær eingöngu á suðvestanverðu landinu.Lægð úr suðvestri myndar lítilsháttar úrkomu, nær eingöngu á suðvestanverðu landinu. Skil lægðarinnar ná þó ekki inn á land.Bætir í vind, austan 5-10 m/s þegar þegar líður á daginn nokkuð víða og fer upp í 10-15 m/s syðst á landinu.Þokkalega hlýtt í dag, væntanlega hlýjast á Norðurlandi, allt að 19-20 stig.Á morgun fjarlægist lægðin og dregur úr vindi, helst mun blása með suðausturströndinni. Lítilsháttar væta á Austfjörðum og Suðausturlandi en aðrir landshlutar bjartir að mestu. Hiti á bilinu 13-18 stig yfir daginn en svalara við austurströndina.Á miðvikudag og fimmtudag er útlit fyrir rólegt veður, þurrt og milt.Um helgina virðist sem lægðir verði á sveimi við landið og bætir þá í vind með rigningu.
Hlýjast á Norðurlandi í dag, allt að 20 stig

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd