Suður sem heyrist þegar hreyflar dróna fara af stað þekkja orðið flestir. Þetta litla flygildi sem á um áratug hefur orðið gríðarvinsælt meðal ljósmyndara, áhrifavalda og dellukalla. Drónar eru jafnvel orðnir vinsælar fermingargjafir enda hægt að fá vandað tæki sem flýgur um fyrir hundrað þúsund kall.En dróni getur líka verið allt annars eðlis.Í Úkraínu er hann vopn. Í upphafi voru það hugvitsamir Úkraínumenn sem fundu upp á því að festa handsprengjur við dótadróna með heimagerðum millistykkjum, fljúga þeim í átt að rússneskum hersveitum og varpa sprengjunni á þær úr lítilli hæð.Ódýr og einföld lausn. Ódýr og einföld lausn sem aðrir veittu athygli.Á nokkrum misserum er dróninn orðinn eitt aðalvopnið í Úkraínu, beggja vegna víglínunnar, en líka í Íran og meira að segja í borgarastyrjöldinni