Eldur kviknaði í bíl á keyrslu

Eldur kviknaði í bíl á keyrslu á Nesjavallaleið síðdegis í gær. Varðstjóri Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins segir að slökkviliðinu hafi borist tilkynning um rúmlega sex síðdegis. Eldurinn kom upp á akstri í gömlum bensínbíl en bílstjórinn stöðvaði bílinn úti í vegkanti og óskaði eftir aðstoð Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins.Tveir dælubílar voru sendir á vettvang en annar var síðar afturkallaður. Varðstjóri slökkviliðs segir bílinn töluvert tjónaðan en þó ekki albrunninn. Enginn var fluttur á slysadeild eftir brunann.
Eldur kviknaði í bíl á keyrslu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd