Hvalur hf. ætlar að venda sínu kvæði í kross og leggja á hilluna í bili að selja hvalkjöt til Japan en nýta kjöt af langreyðum þess í stað til framleiðslu á járnbætiefni. Bætiefnið verður í formi dufts sem selt verður í hylkjum og er kallað „Reyðarjárn“.