Aðalmeðferð í Reykholtsmálinu svokallaða, þar sem sex eru ákærð, hefst í Héraðsdómi Suðurlands í dag.Fimm karlar og ein kona, sem öll eru Íslendingar, eru ákærð fyrir sérstaklega hættulega og stórfellda líkamsárás, frelsissviptingu, ólögmæta nauðung og rán í Reykholti fyrir tveimur árum.Öll neituðu sök við þingfestingu málsins í mars. Talið er að aðalmeðferðin geti tekið allt að tíu daga.Sakborningarnir, sem eru tengdir fjölskylduböndum, eru sagðir hafa ruðst inn á heimili manns í Reykholti, bundið hendur hans saman með strigalímbandi og veist að honum með grófu ofbeldi. Maðurinn var þá sextugur og er palestínskur en er með maltneskt ríkisfang. EIGA AÐ HAFA STOLIÐ RÚMLEGA ÞRETTÁN MILLJÓNUM Málið vakti mikla athygli á sínum tíma og lögreglustjórinn á Suðurlandi lýsti því sjálfur sem ford