Að minnsta kosti 2.325 hafa látist úr ebólu í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó. Stjórnvöld landsins segja að þetta sé mannskæðasti ebólufaraldur í sögu landsins og fleiri hafa dáið úr faraldrinum nú en á árunum 2018-2020. Þá fórust um 2.280 úr veirunni og um 3.500 smituðust af henni.Lýðheilsustofnun Kongó sagði í gær að staðfest tilfelli væru ríflega 4.900, þar með talið um hundrað tilfelli sem greinst hafa síðasta sólarhringinn. Sameinuðu þjóðirnar hafa varaði við hraðri útbreiðslu veirunnar og segja að einn látist úr veirunni á hálftíma fresti.Flestir eru smitaðir af bundibugyo-afbrigði ebóluveirunnar. Afbrigðið hefur ekki sést í rúman áratug og það eru hvorki til lyf né bóluefni gegn því. Unnið er að því að þróa bóluefni en það gæti tekið nokkra mánuði í þróun.