Fyrirskipar Hegseth að minnka umfang heræfingar með Suður-Kóreu

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur skipað Pete Hegseth varnarmálaráðherra að skera niður í sameiginlegri heræfingu Bandaríkjanna og Suður-Kóreu. Bandaríkjaforseti tilkynnti um þessa ákvörðun í færslu á Truth Social í kvöld.Hann segir að þar sem samband hans og Kim Jong Un, leiðtoga Norður-Kóreu, sé gott sé hann ekki ánægður með að Bandaríkin hafi fyrir löngu fallist á að taka þátt í sameiginlegri heræfingu með Suður-Kóreu.Þessar heræfingar séu ekki aðeins kostnaðarsamar, heldur sendi þær skilaboð sem séu óviðeigandi og óvinveitt til lands sem í forsetatíð hans hafi ekki verið með hótanir og sýnt virðingu.Bandaríkjaforseti segir að of seint sé að hætta við æfinguna og því hafi hann fyrirskipað Hegseth að minnka umfang hennar. Þá sagði Trump að hann hefði nýverið spurt forseta Suður-Kóreu
Fyrirskipar Hegseth að minnka umfang heræfingar með Suður-Kóreu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd