Færsla þar sem æðruleysisbæninni hefur verið breytt í svokallaða „krónuleysisbæn“ var birt í dag, sunnudaginn 16. ágúst, á Facebook-síðu Viðreisnar en henni var skömmu seinna eytt út. Framkvæmdastjóri Viðreisnar segir ástæðuna einfaldlega þá að viðbrögðin við færslunni hafi verið verri en búist var við en að það hafi aldrei verið ætlunin að særa neinn með þessari uppfærðu útgáfu af bæninni.