Talsvert mikið viðbragð var á fjórða tímanum í dag þegar göngumaður slasaðist illa á fæti á stað þar sem virkilega erfitt var að komast að honum. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð til aðstoðar og um klukkan hálf sex hafði maðurinn verið hífður upp og var í kjölfarið fluttur á sjúkrahús í Reykjavík til aðhlynningar og athugunar.