Það tókst að vekja athygli umheimsins á hvalveiðum hér við land, segir aðgerðasinninn Paul Watson í viðtali við RÚV. Leiðangur skipsins Bandero hafi því gengið vel, þótt liðsmenn hands hafi verið handteknir og skip þeirra kyrrsett. Watson gerir þó athugasemdir við kyrrsetningu skipsins.„Eitt af því sem þeir segja er að pappírarnir okkar hafi ekki verið í gildi en samt sem áður vorum við nýlega skráð í Panama og Brasilíu,“ segir Watson sem tekur fram að eftirlitsmenn á Írlandi hafi einnig farið yfir skipið áður en það kom til Íslands og lýst það sjóhæft.„Lögfræðingar okkar verða í sambandi við hafnaryfirvöld á Íslandi á morgun til þess að útskýra hvað er í gangi,“ segir hann.Enginn glæpur var framinn með aðgerðum gegn hvalveiðum í sumar, segir aðgerðasinninn Paul Watson í viðtali við RÚV. Á