Par lést í gróðureldum

Eldra par lést í gróðureldum fyrir utan heimili sitt á grísku eyjunni Salamis í dag. Tveir eldar kviknuðu með stuttu millibili á fjölsóttum ströndum og dreifðust hratt vegna sterkra vinda í dag.Margt fólk hefur flúið og fimm hundruð hafa verið flutt af eyjunni. Hún er nálægt Aþenu, höfuðborg Grikklands, og þar búa um 37 þúsund. Margir íbúarnir eru eldri borgarar.Um 200 slökkviliðsmenn reyndu að koma í veg fyrir að eldarnir tveir á Salamis næðu saman í dag. Ekki liggur fyrir hvernig þeir kviknuðu.
Par lést í gróðureldum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd