Tveir létust og mörg hundruð manns voru flutt á brott af grísku eyjunni Salamis sem er nærri höfuðborginni Aþenu en tveir gróðureldar kviknuðu „nánast samtímis“ eða um klukkan 14:40 á staðartíma og svo tuttugu mínútum seinna. Fyrri eldurinn kviknaði á suðurströnd eyjunnar og að sögn slökkviliðsyfirvalda í Grikklandi breiddist hann gríðarlega hratt út vegna hvassviðris.