Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út vegna göngumanns sem slasaðist í nágrenni við fossinn Glym við botn Hvalfjarðar rétt fyrir klukkan fjögur í dag.Þetta segir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar.Meiðsli mannsins voru ekki alvarleg en erfitt var að komast að honum. Þyrlan lenti á Reykjavíkurflugvelli um hálf sex. Maðurinn var fluttur með sjúkrabíl á Landspítalann.Glymur er næsthæsti foss á Íslandi.RÚV / Alma Ómarsdóttir