Sigurgeir þurfti að hætta sundi eftir hálfan sólarhring

Sundkappinn Sigurgeir Svanbergsson hætti sundi sínu niður Lagarfljót rétt við brúna milli Egilsstaða og Fellabæjar á fjórða tímanum.Hann hafði synt um 23 kílómetra á þrettán og hálfum klukkutíma. Stöðva þurfti sundið vegna nuddsárs sem Sigurgeir hlaut á hægri hönd.„Hann missir eiginlega máttinn í hægri hendinni þannig að hann getur ekki beitt henni. Það versnar náttúrlega hratt eftir að þetta byrjar. Mér fannst ekki öruggt að fara með hann niður í strauminn með aðra höndina ekki í lagi,“ segir Árni Geir Bergsson, sem er í fylgdarliði Sigurgeirs.Hann segir sundkappanum líða vel miðað við aðstæður. „Hann er góður og verður góður, ég hef enga trú á öðru. Það var enginn kuldi í honum. Ég held hann verði fljótur til baka aftur.“Árni segir þó að sundinu verði ekki fram haldið. „Ég held að gluggi
Sigurgeir þurfti að hætta sundi eftir hálfan sólarhring

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd