Meira en tólf tímar eru frá því að sundkappinn Sigurgeir Svanbergsson stakk sér til sunds og hóf tilraun sína til að synda Lagarfljótið endilangt. Árni Geir Bergsson, sem er í fylgdarliði Sigurgeirs, segir sundið ganga mjög vel.„Ég hef fulla trú á að þetta takist. Minn maður er það heitur. Ég synti með honum áðan og hitastigið á fljótinu er það gott að ekkert inni í mér segir mér að hann klári þetta ekki,“ segir hann.Sigurgeir hóf aðra atrennu sína að því að synda 40 kílómetra niður Lagarfljót stuttu fyrir klukkan tvö í nótt. Hann syndir til að safna fé fyrir Píeta-samtökin.Sigurgeir reyndi við þrekraunina í júní en þurfti að láta staðar numið eftir 15 kílómetra vegna ofkælingar. Hann hóf sundið þar sem hann nam staðar síðast. RÉTT ÓKOMINN AÐ BRÚNNI HJÁ EGILSSTÖÐUM Sigurgeir er nú rétt