Tinna Bessadóttir, hönnuður og viðburðarstjóri, sakar Hafnarfjarðarbæ um að hafa tekið yfir Álfahátíðina í Hellisgerði, árlegan viðburð og hugverk sem hún eigi réttinn að og hafi skapað frá grunni. Hún sakar bæjaryfirvöld um óheiðarleika. „NAFNIÐ ÁLFAHÁTÍÐ Í HELLISGERÐI ER ÞAÐ SEM ÉG BÝ TIL“ Síðustu tæplega tíu ár hefur álfum verið gert hátt undir höfði á árlegri Álfahátíð sem haldin er í Hellisgerði í Hafnarfirði.Tinna Bessadóttir, hönnuður og viðburðarstjóri, segir hugmyndina að hátíðinni hafa orðið til þegar hún sat nám í viðburðastjórnun.„Ég var búin að ganga með þessa hátíð í maganum í svona ár að mig langaði að gera einhverja barnahátíð og hafa þetta ókeypis. Og svo þróaðist hún áfram,“ segir Tinna.Og nafnið, Álfahátíð í Hellisgerði, kemur frá þér?„Jú, nafnið Álfahátíð í Hellisger