Tveir af stærstu vogunarsjóðum heimsins, sem byrjuðu að kaupa í Oculis undir lok síðasta árs, juku umtalsvert við stöðu sína á öðrum fjórðungi þegar hlutabréfaverð líftæknifélagsins féll eins og steinn eftir að eitt af þróunarlyfjum þess tókst ekki að ná aðalmarkmiðum sínum úr tveimur rannsóknum. Sumir erlendir fjárfestingarsjóðir hafa hins vegar í kjölfarið selt sig nánast alfarið út úr hluthafahópnum.