Formaður VR segir að ríki og sveitarfélög hafi ekki staðið við skuldbindingar sínar varðandi kjarasamninga. Löngu sé ljóst að forsendur þeirra hafi brostið og að verðbólga verði yfir 4,7% uppsagnarákvæði samninganna við næstu verðbólgumælingu. KJARNINN LIGGUR Í VERÐBÓLGUNNI OG VÖXTUNUM „Klukkan heldur bara áfram að tifa,“ segir Halla Gunnarsdóttir formaður VR. „Annars vegar í átt að vísitölumælingunni 27. ágúst - hins vegar í átt að stýrivaxtaákvörðun sem verður 19. ágúst. Í þessum tveimur þáttum, verðbólgunni og vöxtunum liggur kjarninn í kjarasamningum og lífskjörum almennings.“Fátt virðist geta komið í veg fyrir að verðbólga, sem nú mælist 5,3% verði yfir 4,7% viðmiði kjarasamninganna, svokallaðra stöðugleikasamninga, þann 1. september þegar heimild er til að endurskoða þá. Hvað eru