Íbúar á Flores-eyju sofa utandyra af ótta við eftirskjálfta

Fimmtíu, hið minnsta, hafa fundist látin eftir jarðskjálfta sem skók Flores-eyju í Indónesíu á föstudag.Fimm þúsund hafa flúið heimili sín og margir halda til utandyra af ótta við eftirskjálfta.Björgunarlið leitar enn í rústum húsa eftir skjálftann, sem var 7,7 að stærð.Talið er að hátt í þúsund byggingar hafi skemmst en það mun taka tíma að meta umfang skemmda vegna þess hve dreifbýl byggð er á eyjunni. SKÓLAR OG SJÚKRAHÚS URÐU FYRIR SKEMMDUM Skólar, sjúkrahús og opinberar stofnanir urðu fyrir skemmdum.Sjúklingar fá læknisaðstoð utandyra en erfiðlega hefur gengið að koma nauðsynlegum hjálpargögnum á svæðin sem urðu verst úti. Margir vegir lokuðust vegna aurskriða sem féllu eftir skjálftann.Þúsundir gistu utandyra í nótt af ótta við eftirskjálfta og ljóst er að áhrif skjálftans á dagleg
Íbúar á Flores-eyju sofa utandyra af ótta við eftirskjálfta

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd