Staða Íslands í Evrópusamstarfi er um margt sérstæð. Við erum eitt fárra fullburða og fullvalda ríkja í Vestur-Evrópu sem hefur kosið að nýta ekki fullveldisrétt sinn með formlegri aðild að Evrópusambandinu. Hin ríkin eru Noregur og Sviss. Öll eiga þessi þrjú ríki þó í afar nánum tengslum við Evrópusambandið, líkt og ýmis evrópsk örríki á borð við furstadæmið Liechtenstein, sem...